Forsíða / Vörur
Sólbekkir
Fanntófell framleiðir sólbekki og gluggakistur eftir máli, í mörgum breiddum og þykktum. Við höfum sérhæft okkur í framleiðslu á sólbekkjum síðan 1987.

- Efni
- Harðplast, akrýlsteinn, Fenix NTM og límtré
- Mesta lengd án samskeyta
- 420 sm
- Mesta breidd án samskeyta
- 124 sm
- Kantar
- ABS-laserkantur, viðarkantur eða beinn álímdur kantur
Formbeygðir sólbekkir úr harðplasti
Fanntófell sérhæfir sig í framleiðslu á formbeygðum (rúnuðum) sólbekkjum. Ávalar brúnir draga síður til sín raka og óhreinindi og eru slitsterkari.
Harðplast er vinsæll og hagkvæmur kostur. Það er viðhaldsfrítt, slitsterkt og endist lengi og hentar vel fyrir heimili, verslanir, veitingahús og aðra staði.
Akrýlsteinn
Akrýlsteinn hentar mjög vel fyrir sólbekki og gluggakistur. Hann er gegnheill og samskeyti eru nánast ósýnileg.
Fenix NTM
FENIX er matt harðplast sem endurspeglar lítið ljós, hefur mjúka áferð við snertingu, kámast ekki og smárispur má laga með hita. Efnið er mjög slitsterkt.
Límtré
Olíuborið límtré er góður kostur fyrir sólbekki. Olían verndar viðinn og er vatnsfráhrindandi. Lakkað límtré er viðhaldsfrítt en mjög viðkvæmt fyrir rispum.
Þrif og viðhald
Við dagleg þrif á gluggakistum er best að nota þurran töfrasvamp eða rakan trefjaklút, ásamt hreinsilegi á fitu. Hægt er að nota sterkari sápu á erfiðari óhreinindi.
Kantar á harðplast
Þrjár leiðir til að ganga frá brúninni.
ABS-laserkantur
Hitaháþrýstitækni án líms, svo engin límfúga er sýnileg. Kantinn má fá í sambærilegum lit, viðarlit eða állitaðan. Slitsterkur, hitaþolinn og vatnsþolinn.
Viðarkantur
Viðarkantar fást í 1,5–8 mm þykkum lökkuðum við, til dæmis eik eða beyki.
Beinn álímdur kantur
Sama plast og á yfirborði plötunnar er límt á kantana. Þá verður límfúga sýnileg á brúnum.

Veggklæðningar
Skilrúm
Munaskápar