Gylfaflöt 6–8, 112 ReykjavíkSýningarsalur og skrifstofaSími 587 6688

Forsíða / Vörur

Borðplötur

Fanntófell framleiðir borðplötur eftir máli, í ýmsum breiddum og þykktum. Við höfum sérhæft okkur í framleiðslu á borðplötum síðan 1987.

Borðplötur
Efni
Harðplast, akrýlsteinn, Fenix NTM og límtré
Mesta lengd án samskeyta
420 sm (límtré 450 sm)
Mesta breidd án samskeyta
124 sm (Fenix NTM 120 sm)
Vaskar
Yfirfelldir, niðurfelldir eða undirlímdir

Veldu efni

Við smíðum borðplötur úr fjórum efnum. Hér sérðu hvað einkennir hvert þeirra, hvar það hentar og hve stórar plötur fást án samskeyta.

Harðplast, mynd 1Harðplast, mynd 2

Viðhaldslítið, slitsterkt og endist lengi.

Yfirlagið er HPL-harðplast (e. high pressure laminates) sem er límt á spónaplötu. Undirlagið er rakafólía sem hrindir frá sér raka. Harðplastið er slitsterkt og hefur mikið hitaþol, upp að 180°C.

Við erum með mikið úrval lita á lager og ýmsar áferðir, svo sem háglans, matt og yrjótt. HPL-harðplast frá Arpa og Duropal fæst Svansvottað. Mögulegt er að undirlíma vaska í harðplast.

Við eigum líka 12 mm gegnheilt harðplast (compact) sem hentar vel í eldhús og bað, inni sem úti, og til dæmis sem kaffiborð á veitingahúsum.

Mesta mögulega lengd án samskeyta er 420 sm og mesta breidd án samskeyta er 124 sm.

Kostir

  • Slitsterkt
  • Hitaþolið
  • Dregur ekki í sig liti eða efni
  • Upplitast ekki
  • Rispur sjást síður á yrjóttri áferð en sléttri

Hentar fyrir

  • Heimili
  • Almenningssvæði
  • Verslanir
  • Veitingahús
  • Hótel
Skoða lagerliti (Arpa)

Kantar á harðplast

Þrjár leiðir til að ganga frá brúninni.

  • ABS-laserkantur

    Hitaháþrýstitækni án líms, svo engin límfúga er sýnileg. Kantinn má fá í sambærilegum lit, viðarlit eða állitaðan. Slitsterkur, hitaþolinn og vatnsþolinn.

  • Viðarkantur

    Viðarkantar fást í 1,5–8 mm þykkum lökkuðum við, til dæmis eik eða beyki.

  • Beinn álímdur kantur

    Sama plast og á yfirborði plötunnar er límt á kantana. Þá verður límfúga sýnileg á brúnum.

Myndir