Forsíða / Vörur
Munaskápar
Fanntófell framleiðir munaskápa og bekki úr gegnheilu HPL-harðplasti, meðal annars fyrir íþróttahús og sundlaugar.

- Efni
- Gegnheilt HPL-harðplast
- Læsingar
- Talnalás eða lyklalás
- Útfærslur
- Hólf, skilrúm, fatahengi og öndun
Fjölbreytt efnis- og litaval
Hægt er að fá mismunandi læsingar, eins og talnalás eða lyklalás, og þannig geta munaskápar komið að notum fyrir alls konar fyrirtæki, félög og stofnanir. Munaskápar fást í mörgum stærðum og gerðum og geta innihaldið hólf og skilrúm.
Sumir munaskápar eru með fatahengi, eins og til dæmis í sundlaugum. Eins getur verið gagnlegt að hafa öndun á munaskápum svo að raki komist út.
Smáhólfaskápar
Við erum með mikið úrval svokallaðra smáhólfaskápa sem henta vel fyrir til dæmis líkamsræktarstöðvar og vinnustaði. Munaskápar fást í ýmsum verðflokkum og eru mikið notaðir í starfsmannaaðstöðu.

Skápahurðir
Innihurðir
Gólfefni