Gylfaflöt 6–8, 112 ReykjavíkSýningarsalur og skrifstofaSími 587 6688

Forsíða / Vörur

Skápahurðir

Fanntófell framleiðir skápahurðir eftir máli úr harðplasti, Fenix og melamíni, fyrir heimili, verslanir, veitingahús og aðra staði.

Skápahurðir
Þykkt
16–19 mm
Efni
Harðplast, Fenix og melamín
Mesta lengd
420 sm
Mesta breidd
124 sm

Frontar á innréttingar og skápa

Við framleiðum skápa- og skúffufronta eftir máli á innréttingar og skápa. Skápahurðir móta útlitið í eldhúsi, á veitinga- og kaffihúsum og á skrifstofum. Þær þurfa að vera fallegar og vel hannaðar en líka sterkar og þola eðlilega umgengni.

Laserkantar

Með ABS-laserköntum notum við hitaháþrýstitækni sem gerir það að verkum að ekkert lím er notað og því sést engin límfúga. Slík viðloðun er hitaþolin og gerir samskeytin algjörlega vatnsþolin.

Þrif og viðhald

Við dagleg þrif er best að nota trefjaklút og vatn og uppþvottalög á fitu. Hægt er að nota sterkari sápu á erfiðari óhreinindi.

Myndir

Bæklingar og leiðbeiningar