Forsíða / Vörur
Innihurðir
Fanntófell flytur inn vottaðar gæðahurðir frá Westag. Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika.

- Framleiðandi
- Westag, Þýskalandi
- Yfirborð
- CPL, HPL, lakk, Fenix NTM, Fenix NTA og Homapal
- Rými
- Almenn rými, rakarými og eldvarnarhurðir
- Vottanir
- Blái engillinn og PEFC
Mikilvægur þáttur í rýmishönnun
Áferð og litur hurðar hefur mikil áhrif á tilfinninguna innan rýmisins. Westag er eini hurðaframleiðandinn sem framleiðir hurðir bæði með HPL- og CPL-yfirborðsefni, í miklu úrvali lita og áferða.
Harðplast- og lakkaðar hurðir fyrir öll almenn rými, rakarými og sem eldvarnarhurðir. Þær henta jafnt fyrir heimili, heilsulindir, skóla og heilbrigðisstofnanir, eru þægilegar í umhirðu og þola öll almenn hreinsiefni.
Portalit (CPL) og Getalit (HPL)
Sterkar og endingargóðar hurðir sem eru höggþolnar, upplitast ekki og eru auðveldar í þrifum. Getalit hentar þar sem álag á yfirborð er mikið og hægt er að fá extra háar og breiðar hurðir.
Westalack
Slitsterkar lakkaðar hurðir sem upplitast ekki og auðvelt er að þrífa, í áferðunum Premium, Soft og Smart. Vottaðar með Bláa englinum.
Fenix NTM, Fenix NTA og Homapal
Fenix NTM er matt og silkimjúkt, fingrafarafrítt og örrispur má laga með hitameðferð. Hurðir og karmar fást í sama efni og lit, í 14 litum. Fenix NTA er matt málmyfirborð með sömu eiginleika. Homapal eru slitsterkar hurðir með málmyfirborði sem henta vel fyrir hótel, bari og skrifstofur.
Rennihurðir
Rennihurðir spara pláss og fást í mörgum litum og áferðum, með eða án ramma og með valfrjálsum læsingarbúnaði, hvort sem er utan á vegg eða inn í vegg. Einnig sérhannaðar glerrennihurðir.
Sjálfbærni
Westag-hurðir eru framleiddar í Þýskalandi. Viðurinn er fenginn úr vottuðum sjálfbærum skógum, lakk er eingöngu vatnsleysanlegt og viðarúrgangur er endurunninn.
Hvernig panta ég innihurðir?
Fyrir staðfestingu á pöntun þarf að staðfesta málsetningar, eða við mælum og setjum upp hurðirnar fyrir þig.

Gólfefni
Sérsmíði og innréttingar
Hillur