Forsíða / Vörur
Hillur
Fanntófell framleiðir hillur eftir máli, í ýmsum breiddum og þykktum, fyrir heimili, verslanir, veitingahús og önnur húsakynni.

- Þykkt
- Frá 17 mm
- Mesta lengd
- 420 sm
- Mesta breidd
- 124 sm
- Efni
- Harðplast eða límtré
Harðplast
Yfirlagið er HPL-harðplast sem er límt á spónaplötu og gerir hillurnar bæði níðsterkar og endingargóðar. Undirlagið er plast í sama lit eða rakafólía. Við erum með mikið úrval lita á lager í ýmsum áferðum, svo sem háglans, matt og yrjótt.
Laserkantar
Með ABS-laserköntum er ekkert lím notað og því sést engin límfúga á hillunum. Slík viðloðun er hitaþolin og gerir samskeytin algjörlega vatnsþolin.
Límtré
Olíuborið límtré er góður kostur fyrir hillur. Olían verndar viðinn og er vatnsfráhrindandi. Lakkað límtré er viðhaldsfrítt en mjög viðkvæmt fyrir rispum.

Micare
Borðplötur
Sólbekkir