Gylfaflöt 6–8, 112 ReykjavíkSýningarsalur og skrifstofaSími 587 6688

Forsíða / Skilmálar

Skilmálar

Skilmálar um sölu á borðplötum, skilrúmum, innihurðum og innréttingum frá Fanntófelli.

  1. Almenn ákvæði

    Þessir skilmálar gilda um sölu á borðplötum, skilrúmum, innihurðum og innréttingum (hér eftir nefnt „varan“) af hálfu Fanntófells. Með því að kaupa vöru samþykkir kaupandi þessa skilmála í heild sinni.

  2. Pantanir og greiðsluskilmálar

    Almennt gilda tilboð í 30 daga frá dagsetningu tilboðsins. Þar sem vara er ávallt framleidd samkvæmt málum og/eða teikningum viðskiptavinar skal hann tryggja að allar upplýsingar séu réttar.

    Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) með virðisaukaskatti, nema annað sé tekið fram. Pantanir eru staðfestar við móttöku greiðslu, nema um annað sé samið. Greiðsla skal fara fram í samræmi við skilmála sem fyrirtækið setur fram við hverja pöntun.

  3. Afhending vöru

    Viðskiptavinur fær tölvupóst og reikning í heimabanka þegar vara er tilbúin. Varan er afhent af lager Fanntófells að Gylfaflöt 6–8. Frá þeim tímapunkti ber kaupandi alla ábyrgð á vörunni, þar með talið flutning, uppsetningu og meðhöndlun. Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður eftir afhendingu.

    Ef Fanntófell sér um uppsetningu vörunnar er ábyrgðin hjá framleiðanda þar til varan er uppsett.

    Ef vara er ekki sótt fær viðskiptavinur reglulega áminningu. Geymslugjald, 1.500 kr., reiknast fyrir hvern dag sem pöntun er ósótt þegar 10 dagar eru liðnir frá fyrstu áminningu. Hafi vara ekki verið sótt innan 4 mánaða frá pöntun áskilur Fanntófell sér rétt til að farga vörunni.

  4. Ábyrgð og kvartanir

    Fyrirtækið ábyrgist að varan sé í samræmi við settar gæðakröfur við afhendingu. Kaupandi skal yfirfara vöruna við móttöku og tilkynna um hugsanlega galla innan 7 daga frá afhendingu. Eftir þann tíma telst varan samþykkt og fyrirtækið ber ekki ábyrgð á göllum sem upp kunna að koma.

    Þegar tilkynnt er um galla skal gefa upp allar helstu upplýsingar sem hjálpað geta til við vinnslu mála og með tilkynningunni þarf að fylgja ljósmynd sem sýnir gallann. Eftir að gögn hafa borist ákveður framleiðandi hvort frekari rannsókn fari fram. Kostnaður er þá greiddur af framleiðanda ef galli reynist vera á framleiðsluvöru hans, að öðrum kosti af þeim sem kvörtun bar fram.

  5. Skil og endurgreiðslur

    Engin skil eða endurgreiðslur eru heimilar nema um gallaða vöru sé að ræða. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að meta hvort varan teljist gölluð og hvort hún verði endurnýjuð eða endurgreidd.

  6. Sérpantanir og sérsmíði

    Fyrirtækið tekur ekki við skilum eða endurgreiðslu á sérpöntunum eða sérsmíðuðum vörum nema þær reynist gallaðar samkvæmt skilmálum ábyrgðar.

  7. Lög og varnarþing

    Viðskiptin falla undir íslensk lög. Rísi ágreiningur um túlkun eða framkvæmd þessara skilmála skal hann leystur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

  8. Önnur ákvæði

    Fyrirtækið áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum án fyrirvara. Breytingar taka gildi við birtingu þeirra á heimasíðu fyrirtækisins eða með öðrum hætti.