Gylfaflöt 6–8, 112 ReykjavíkSýningarsalur og skrifstofaSími 587 6688

Forsíða / Þjónusta

Þjónusta

Við tökum mál, veitum ráðgjöf og setjum upp borðplötur og innréttingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Uppsetningarþjónusta

Við tökum að okkur að mæta á staðinn. Við tökum mál, veitum ráðgjöf og setjum upp borðplötur og innréttingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Hafðu samband í síma 587 6688 eða á fanntofell@fanntofell.is fyrir nánari upplýsingar.

Eldhús með borðplötu frá Fanntófelli

Hvernig á að panta?

Prentaðu út leiðbeiningar og sendu okkur. Við svörum fúslega spurningum sem þú kannt að hafa.

  1. Teiknaðu skýringarmynd

    Prentaðu út verkbeiðnina og teiknaðu inn á hana skýringarmynd með upplýsingum um efnisval og mál.

    Verkbeiðni (PDF)
  2. Öll mál eru utanmál

    Mikilvægt er að öll mál séu utanmál, eins og sést á sýnishorni af teikningu í leiðbeiningunum. Vinnið pantanir skýrt og greinilega til að forðast mistök.

    Hvernig á að panta (PDF, 0,43 MB)
  3. Sendu okkur skjalið

    Sendu skjalið skannað í tölvupósti á fanntofell@fanntofell.is, eða fylltu út beiðni um tilboð hér á vefnum.

Umhirða

Við dagleg þrif á borðplötum er best að nota trefjaklút og vatn. Hér eru leiðbeiningar fyrir hvert efni.

Harðplast

  • Rakur trefjaklútur eða rakur svampur er bestur við dagleg þrif. Forðist óhóflega notkun á feitu hreinsiefni eins og uppþvottalegi.
  • Ef sápu- eða fituleifar sitja eftir á plötunni er auðvelt að ná þeim af með mildu spreyi sem ætlað er á eldhúsbekkplötur.
  • Forðist ætandi hreinsiefni, hreinsiduft með kornum og stálull. Þau geta mattað og rispað yfirborðið.
  • Erfiðustu blettina má þrífa með til dæmis þynni, en gætið þess að hann sitji ekki lengi á plötunni og þrífið allar leifar vel af með vatni.

Akrýlsteinn

  • Við dagleg þrif er best að nota trefjaklút og vatn.
  • Erfiða bletti má meðhöndla með því að láta blöndu af hreinsiefni og vatni liggja á blettinum í smá tíma og hreinsa hana síðan af með svampi og hreinu vatni.
  • Bletti sem hafa legið lengi, til dæmis eftir djús, te, kaffi og rauðvín, má þrífa af með töfrasvampi eða tannkremi.
  • Rispur og skemmdir má fægja af.

Fenix NTM

  • Efnið er einstaklega auðvelt í umhirðu og krefst ekki sérstakra hreinsiefna í daglegri umhirðu.
  • Vegna þess hve efnið er lokað hrindir það frá sér myglu og hefur bakteríudrepandi eiginleika.
  • Litlar rispur má eyða með hita.
  • FENIX vaska er best að þrífa með mjúkum klút eða svampi og mildu hreinsiefni. Skolið með volgu vatni og þurrkið með mjúkum klút.

Límtré

  • Þegar olía er borin á borðplötuna verður hún að vera alveg hrein og þurr. Berið olíuna á með klúti, svampi eða pensli.
  • Látið olíuna standa í um það bil 20 mínútur og þurrkið þá alla umframolíu af með hreinum klúti, sérstaklega úr samskeytum.
  • Þurrkið yfir með þurrum bómullarklúti. Það lokar yfirborðinu betur og gefur glans.
  • Gott er að bera á borðplöturnar 2–3 sinnum á ári eða eftir þörfum.
  • Athugið: þurrkum og klútum sem mettaðir eru af olíu þarf strax að farga í innsigluðum ílátum eða brenna þá vegna hættu á sjálfíkveikju. Fylgið leiðbeiningum framleiðanda.

Gott að vita

  • Aldrei má skera á borðplötunum sjálfum. Notið viðurkennd skurðarbretti.
  • Borðplötuefnin okkar eru mjög hitaþolin en betra er að setja heita potta, pönnur og tæki sem gefa frá sér stöðugan hita á hitahlíf.
  • Gott er að setja gufuvörn undir borðplötuna fyrir ofan uppþvottavél til að vernda plötuna fyrir raka.
  • Uppþvottalögur inniheldur mikla fitu sem getur skilið eftir ský eða tuskuför á plötum.
  • Kísill er þrifinn af borðplötum með ediki eða sítrónusýru og síðan hreinsaður af með svampi og hreinu vatni.
  • Tryggja þarf að borðplötur komist ekki í stöðuga snertingu við sterk kemísk efni eins og acetone, terpentínu, klór, ofnahreinsi og stíflueyði. Slík efni matta yfirborðið.

Við seljum líka Micare, náttúrulegar hreinsivörur fyrir harðplast, akrýlstein og viðarborð.