Forsíða / Um Fanntófell
Um Fanntófell
Við höfum framleitt borðplötur síðan 1987. Fanntófell sérhæfir sig í smíði á borðplötum, sólbekkjum, salernisskilrúmum, skápahurðum og innréttingum, allt eftir óskum hvers og eins.
Sérsmíðað eftir pöntun
Sérsvið okkar var lengi formbeyging (e. postforming) á harðplasti en jafnframt framleiðum við plötur úr límtré, Fenix NTM og akrýlsteini. Hráefnið sem við smíðum úr er allt af miklum gæðum: slitsterkt og hitaþolið HPL-harðplast, gegnheill akrýlsteinn frá Hi-macs og Getacore og besta fáanlega límtré hverju sinni.
Við framleiðum fyrir

Sagan í fermetrum
Úr 180 fermetrum í Reykholti í 1975 fermetra að Gylfaflöt.
- 1987
Reykholt í Borgarfirði
Þórir Jónsson og Sigurður Bragi Sigurðsson stofna Fanntófell. Framleiðslan er fyrstu árin í 180 fermetra húsnæði í Reykholti.
- 1990
Kópavogur
Framleiðslunni var vel tekið og til að mæta aukinni eftirspurn flytur félagið til höfuðborgarinnar, í 300 fermetra leiguhúsnæði í Kópavogi.
- 1995
Bíldshöfði 12
Fljótlega var komin þörf fyrir stærra húsnæði og Fanntófell flytur í 500 fermetra á Bíldshöfða 12.
- 2016
Bíldshöfði 12
Rýmið var stækkað í áföngum og fyrirtækið var komið í um 1000 fermetra á sama stað.
- Í dag
Gylfaflöt 6–8
Í dag er öll starfsemin í 1975 fermetra húsnæði sem við byggðum og sérútbjuggum að Gylfaflöt 6–8.

Svansvottun
Fanntófell hefur fengið afhent Svansleyfi, fyrst íslenskra framleiðenda, fyrir innréttingu, nánar tiltekið borðplöturnar Fenix NTM, Arpa og Duropal. Þetta er fyrsta Svansleyfið sem gefið er út hér á landi í viðmiðunum fyrir húsgögn og innréttingar.
Á síðustu árum hefur verkefnum sem fara eftir nýbyggingar- og endurbótaviðmiðum Svansins fjölgað gífurlega og eftirspurn eftir vottuðum byggingarvörum aukist á sama tíma.
Þegar innréttingar og húsgögn eru vottuð þurfa þau að uppfylla strangar kröfur Svansins. Meðal annars eru skoðuð þau efni sem notuð eru í framleiðsluferlinu, umbúðir, rekjanleiki og ábyrgð framleiðanda. Vörurnar eru einnig gæðaprófaðar, til dæmis með tilliti til styrkleika og slitþols.
Leyfi Norræna umhverfismerkisins nr. 1031 0159, samkvæmt viðmiðunarreglum 031 Húsgögn og innréttingar.
Starfsfólk
Sigurður Bragi SigurðssonFramkvæmdastjórisiggi@fanntofell.is
Kristbjörg GuðmundsdóttirBókhald og markaðsmálkrissa@fanntofell.is
Páll Þór PálssonSölumaður- EHEydís Hlín ArnarsdóttirSölumaðureydis@fanntofell.is
- EBEiður Björn IngólfssonSölumaður, innréttingareidur@fanntofell.is
Jóhannes SigurðssonFramleiðslustjóri
Óskar HaukssonTrésmiður
Artem PivovatovStarfsmaður
Szymon JaworskiStarfsmaður
Krzysztof SzczepanikStarfsmaður
Bjarni AndréssonUppsetning
Aðalberg Snorri GestssonStarfsmaður
