Borðplötur eftir máli síðan 1987
Fanntófell sérsmíðar borðplötur, sólbekki, skilrúm og innréttingar fyrir arkitekta, hönnuði, verktaka og einstaklinga, allt eftir óskum hvers og eins.
Prófaðu: veldu efni, lit og mál og sjáðu plötuna þína verða til.
Harðplast · Arpa 4574 Rovere Iceland Alevè · 280 × 62 sm
Mesta mögulega lengd án samskeyta er 420 sm og mesta breidd án samskeyta er 124 sm.
Fá tilboð í þessa plötuÞað sem við smíðum
Borðplötur, sólbekkir, skilrúm, innréttingar, munaskápar, hillur og veggklæðningar, allt sérsmíðað eftir pöntun.
BorðplöturHarðplast, akrýlsteinn, Fenix NTM og límtré
SólbekkirSólbekkir og gluggakistur eftir máli
VeggklæðningarÁ milli innréttinga og á heila veggi
SkilrúmSalernisskilrúm eftir máli
MunaskáparMunaskápar og bekkir úr gegnheilu harðplasti
SkápahurðirSkápa- og skúffufrontar eftir máli
InnihurðirVottaðar gæðahurðir frá Westag
GólfefniHFLOR vínilgólfefni frá LX Hausys
Sérsmíði og innréttingarInnréttingar og borð eftir þinni hugmynd
HillurHillur eftir máli úr harðplasti og límtré
Micare100% náttúrulegar hreinsivörur- Vantar þig ráðgjöf?Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og unnt er.Hafa samband
Fjögur efni, hvert með sína kosti
Hráefnið sem við smíðum úr er allt af miklum gæðum. Berðu efnin saman og finndu það sem hentar þínu rými.


Viðhaldslítið, slitsterkt og endist lengi.
Yfirlagið er HPL-harðplast (e. high pressure laminates) sem er límt á spónaplötu. Undirlagið er rakafólía sem hrindir frá sér raka. Harðplastið er slitsterkt og hefur mikið hitaþol, upp að 180°C.
Mesta mögulega lengd án samskeyta er 420 sm og mesta breidd án samskeyta er 124 sm.
Kostir
- Slitsterkt
- Hitaþolið
- Dregur ekki í sig liti eða efni
- Upplitast ekki
- Rispur sjást síður á yrjóttri áferð en sléttri

Fyrsta Svansleyfið á Íslandi fyrir húsgögn og innréttingar
Fanntófell hefur fengið afhent Svansleyfi, fyrst íslenskra framleiðenda, fyrir borðplöturnar Fenix NTM, Arpa og Duropal. Leyfisnúmer 1031 0159.
Meira um SvansvottuninaVerkin okkar
Sjá öll verkinSvona pantar þú
Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika.
Mál og teikning
Teiknaðu skýringarmynd með málum og efnisvali. Mikilvægt er að öll mál séu utanmál. Við getum líka mætt á staðinn og tekið mál.
Efni og litur
Veldu á milli harðplasts, akrýlsteins, Fenix NTM og límtrés og skoðaðu lagerlitina hér á vefnum eða í sýningarsalnum.
Tilboð
Við gerum þér tilboð út frá málum og efnisvali. Almennt gilda tilboð í 30 daga.
Smíði og afhending
Þú færð tölvupóst þegar varan er tilbúin og sækir hana á lager að Gylfaflöt 6–8, eða við setjum hana upp fyrir þig.


Frá Reykholti í Borgarfirði
Fanntófell ehf. var stofnað í Reykholti í Borgarfirði árið 1987 og framleiðslan var fyrstu árin í 180 fermetra húsnæði. Í dag er öll starfsemin í 1975 fermetra húsnæði sem við byggðum og sérútbjuggum að Gylfaflöt 6–8 í Reykjavík.
Sérsvið okkar var lengi formbeyging á harðplasti en jafnframt framleiðum við plötur úr límtré, Fenix NTM og akrýlsteini.
Um Fanntófell




