Gylfaflöt 6–8, 112 ReykjavíkSýningarsalur og skrifstofaSími 587 6688

Forsíða / Vörur

Gólfefni

Gólfefni frá LX Hausys HFLOR. Helstu styrkleikar HFLOR byggjast á hönnun, tækni, nýsköpun og gæðum.

Gólfefni
Framleiðandi
LX Hausys (HFLOR)
Litir
Yfir 90 afbrigði
Lögn
Límt niður, laust eða smellt saman
Slitlag
0,55 mm eða 0,70 mm

Um HFLOR

Í yfir 60 ár hefur LX Hausys þróað og framleitt hágæða og vistvæn gólfefni. HFLOR hentar mjög vel þar sem gólfhiti er og er hljóðlátara en önnur hliðstæð gólfefni. Það er algjörlega vatnshelt og hentar því vel á öll svæði.

Tvöföld húðuð yfirborðsmeðferð bætir viðnám gegn rispum og blettum og gerir gólfið auðvelt í þrifum og viðhaldi. HFLOR er FloorScore®- og DIBt-vottað fyrir loftgæði innandyra og að fullu endurvinnanlegt.

Þrjár leiðir til að leggja

PRESTG Dryback 55 er límt niður, með 0,55 mm slitlagi. Dryback 70 er með þykkara 0,70 mm slitlagi fyrir svæði með miklum ágangi, eins og fyrirtæki og stofnanir.

PRESTG Decolay 55 og 70 er laust gólfefni sem auðvelt er að leggja. PRESTG Decorigid 55 er smellt saman og er langvinsælasta tegundin enda mjög auðveld í uppsetningu.

Myndir